|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 08 maí 2012 12:34 |
|
Komiði sæl!
Já, það þarf að hafa sig allan við að halda í við tímann. Við (á Tjörn) höfum verið að vasast í vorinu undanfarna daga og erum ekkert alveg hætt þó að talað hafi verið um þemaviku. Hún bara dugði ekki til og því höldum við áfram svo lengi sem okkur lystir!
Nú, það er alltaf í nógu að snúast og maí-mánuður þar engin undantekning. Þ.16. er börnunum á Tjörn boðið á sinfóníutónleika þar sem Maximús Músíkús bjargar ballettinum. Tónleikarnir byrja kl. 9:30. Þ. 25.mai förum við öll í hina dásamlegu sveitaferð. Heimsóknir okkar að Bjarteyjarsandi í Hvalfirði hafa staðið fyrir sínu og blessaðar ærnar haft sig allar við að koma lömbum sínum í heiminn svo að börnin fái notið þeirra kraftaverka. Vonandi komast allir með!
Það hefur verið venja í maí að skólahópur fari í svokallaða nestisheimsókn í Vesturbæjarskólann og verður því haldið til streitu. Nánar um dagsetningu fljótlega.
Og svo kemur júní - jibbí! Og hann byrjar með bravúr því að þ.1. fer skólahópur í útskriftarferð út í Viðey. Þá er farið fyrir hádegi og komið til baka um kaffileytið. Í Viðey skoðum við friðarsúluna, förum í gönguferð, kíkjum á fulglalífið og grillum.
Að lokum viljum við minna á hinn árlega garðvinnudag sem við stefnum á að halda laugardaginn 2. júní. Allt um það þegar nær dregur.
Kveðja frá Tjörn |
|
mánudagur, 23 apríl 2012 15:32 |
|
Næstkomandi fimmtudag, 26.apríl, munu elstu börn Öldukots/Tjarnarborgar fara í Umferðarskólann. Á hverju vori starfrækir Umferðarstofa, lögreglan og sveitarfélögin umferðarskóla fyrir fimm og sex ára börn. Í ár fara börn fædd 2006 í Umferðarskólann og fer hann fram í Laufásborg klukkan 09:30. |
|
þriðjudagur, 17 apríl 2012 09:56 |
|
Jæja þá og loksins hljóð úr horni!
Það er að birta til og menn að sjá fyrir endann á moldvörpustemningunni sem ríkt hefur í sudda og þoku undangenginna vikna. Húrra fyrir birtu og vonandi meiri yl!
Framundan er eitt og annað skemmtilegt eins og alltaf. Í næstu viku, þ. 26. apríl, fer skólahópurinn í umferðarskólann og svo förum við öll á Tjörn á sinfóníutónleika þ. 16. mai. Þar fáum við að heyra söguna af því þegar Maxímús Músíkús bjargar ballettinum.
Eins og þið hafið tekið eftir þá er fjölmenningardregillinn okkar horfinn. Þetta var frábært verkefni og útkoman falleg. Takk fyrir ykkar framlag!
Á miðvikudaginn í næstu viku verður verkstæðisvinna og er hún hugsuð sem upphaf þemadaga sem helgaðir verða vori og vexti. Segjum ykkur betur frá því eftir helgina.
Að lokum viljum við hvetja ykkur til að létta á fataforðanum. Þessi árstími er lúmskur og börnin vilja rífa sig úr, eru komin með ofnæmi fyrir lambhúshettum og göllum en þurfa samt húfu og hlífðarfatnað. Spurning hvernig maður útfærir þetta - getur oft verið dálítið flókið.
Annað var það ekki að þessu sinni.
Gleðilegt sumar!!!! |
|
miðvikudagur, 04 apríl 2012 12:52 |
|
Gleðilega páska !

|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 13 |